Chak 96 R/B skólinn

Skólinn stendur í miðju þorpinu og þjónar fjölskyldum sem búa við kröpp kjör. Tæplega 150 nemendur stunda þar nám.

Skólinn í Chak 96 R/B stendur í miðju þorpinu og þjónar fjölskyldum sem búa við kröpp kjör og hafa sett skólagöngu barna sinna neðarlega í forgangsröðina. Flestir foreldrar og forráðamenn vinna í teppaiðnaði, við múrsteinsbrennslur, á ökrum landeigenda og í verksmiðjum fyrir mjög lág laun.

Þarfir fjölskyldunnar og óvænt útgjöld neyða foreldra til að taka lán hjá vinnuveitendum sínum og með tímanum eru þeir komnir í djúpa skuld. Þessar skuldir neyða foreldra jafnvel til að senda börn sín til vinnu hjá hinum efnameiri til að lækka skuldirnar. Það þurfti mikla sannfæringarvinnu til að fá fólk til að skilja að eina leiðin út úr þessum vítahring, fyrir komandi kynslóðir, er í gegnum menntun.

Skólinn þjónar einnig tveimur öðrum nærliggjandi þorpum. Að loknu námi í þessum skóla fara nemendur í Machike heimavistarskólann til að halda áfram framhaldsskólanámi sínu. Tæplega 150 nemendur stunda nám við skólann.

Til baka í skólana

Myndir frá skólanum

Chak 96 R/B skólinn


Vitnisburðir

Raddir frá Pakistan


Ég kem úr stórri fjölskyldu og foreldrar mínir höfðu ekki efni á að senda mig og fjögur systkini mín í skóla. Við bjuggum ekki langt frá skólanum í Farooqabad og eftir að foreldrum mínum barst sú vitneskja að börn gætu fengið skólastyrki frá örlátu fólki á Íslandi til...
Nazish Nazish Hjúkrunarfræðingur — Farooqabad skólinn
Eftir að ég lauk grunnskóla í þorpinu mínu virtist draumurinn um áframhaldandi nám óraunhæfur. Ég kem úr sjö systkina hópi og forgangsverkefni foreldra minna var að mæta daglegum þörfum heimilisins, ekki að greiða fyrir menntun okkar. Hversu dökkt sem útlitið var hélt ég áfram að vona að eitthvað...
Najma Najma Gjaldkeri og meistaranemi — Machike heimavistarskólinn
Skólarnir

Aðrir skólar


Gujranwala skólinn

Pakistan  ·  200+ nemendur

Gujranwala skólinn

Í einni af stærstu borgum Pakistans þjónar skólinn um 200 börnum úr samfélögum þar sem meirihluti fjölskyldna lifir undir fátæktarmörkum.

Jaranwala skólinn

Pakistan

Jaranwala skólinn

Skólinn var byggður fyrir fé sem kennarar, starfsfólk og nemendur Borgarholtsskóla söfnuðu, og þjónar nokkrum þorpum í útjaðri borgarinnar.

Peshawar skólinn

Pakistan

Peshawar skólinn

Skólinn stendur mitt í samfélaginu sem hann þjónar og leysir þar með helstu áhyggjuefni foreldra af ferðakostnaði og öryggi barnanna.

Styrkja

Lítil framlög hjálpa til við að breyta lífum