Samfélagsstarf
The Light Christian Academy stendur í hjarta samfélags fiskimanna, daglaunafólks og annarra fjölskyldna sem búa við mikinn fjárhagsvanda. Mörg nærliggjandi samfélög standa frammi fyrir svipuðum aðstæðum, þar sem fólk hefur hvorki aðgang að hreinu drykkjarvatni né læknisaðstoð og skortir jafnvel nægar bjargir til að mæta daglegum þörfum sínum.
Í gegnum árin hafa margir hópar frá Bandaríkjunum, Færeyjum og Íslandi heimsótt The Light Christian Academy og um leið rétt nærliggjandi samfélögum hjálparhönd með því að útvega þeim aðstöðu fyrir hreint drykkjarvatn, læknisaðstoð og aðra þá aðstoð sem gerði líf barnanna og fjölskyldna þeirra ögn betra. Hér fylgja nokkrar myndir sem sýna hvað hefur verið gert til að hjálpa nærliggjandi samfélögum. Stjórnin er staðráðin í að veita fleiri samfélögum slíka aðstoð í framtíðinni.